1 hour 20 minutes
@
20.990 ISK
Þessi heildræna meðferð hefst á því að allur líkaminn er burstaður. Síðan tekur við Epsom saltskrúbbur sem fjarlægir dauðar húðfrumur, hreinsar svitaholur, vekur háræðakerfi húðarinnar og örvar sogæðakerfið. Eftir sturtu er líkami, andlit og höfuð nuddað með höndum og heitum steinum sem hafa verið baðaðir orku í náttúru Íslands. Þessi heildræna meðferð stuðlar að góðu jafnvægi fyrir huga og líkama.